Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
29.2.2008 | 12:04
Kapphlaup í matinn!!
Já nú er það svo, að það verður kapphlaup á milli manna og hunda á matartímum. Strákarnir mínir eru mikið að grilla sér brauð í hádeginu....eru svo heppnir að geta skotist heim úr skólanum og nært sig. Fannst mér að vísu osturinn grunsamlega fljótur að hverfa, hafði náð í stórt stykki í fyrradag og var það búið í gær. Nú skýringin fannst undir púðanum í bælinu hennar Lilo, OSTAVEISLA, þar afleiðandi slæmur malli í gær
Svo mín ákvað að gefa eitthvað gott í magan í gærkvöldi, , kjúlli fyrir menn og hunda
Sauð kjúllann ofan í hundana og grillaði fyrir okkur, sauð svo hrígrjónin í kjúllasoðinu og tætti allt niður í skál. Er svo bara að bardúsast með franskar og fl, þegar eldri guttinn kemur með diskinn og hrúgar á hann hundamatnum....með þeim orðum að þetta sé nú bara gott svona
'Eg hló nú svo mikið að ég ætlaði aldrei að koma því út ú mér að þetta væri hundamaturinn, þá var vinurinn búinn að fá sér einn disk og var á prsjón nr tvö
hikaði augnablik, er lét slag standa og fékk sér vel á diskinn nammi. Vel líkaði líka hundunum, og hvarf af skálunum á augabragði. Restin af þeim grillaða fer nú sennilega bara ofaní hrísgrjón í kvöld fyrir herrana, spurning um að blanda kannski smá þurrfóðri með
29.2.2008 | 07:13
Hundasýning
Það verður fjör hjá okkur um helgina, ætla sannarlega að kíkja við báða dagana.
Alþjóðleg hundasýning í reiðhöll Fáks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2008 | 21:22
Köld eru kvenna ráð
Konan búin að fá nóg eftir 7.ár, ekki mikill funi þar á ferð
Eitraði fyrir manni sínum með frostlegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2008 | 14:44
Ronja móðguð!!
'I enn einu rifrildinu á Amercan Idol þá líkir Simon Cowell Idol dómari, Ryan Seacrest við Chihuahua hund gömlu frænkunnar, sem sé ekki vel uppalinn Ronja er stórmóðguð.....enda by far miklu sætari en Ryan Seacrest, þó megi auðvitað deila um stærðina...he he, þá er hann víst ekki hár í loftinu blessaður
http://www.usmagazine.com/simon_cowell_compares_ryan_seacrest_to_chihuahua Glætan
28.2.2008 | 11:24
Lifum og lærum
Það gengur á ýmsu hjá stelpuræflinum, ekki hægt annað en að vorkenna henni. Þetta hefur ekki verið eðlilegt líf hjá henni frá því hún var smástelpa, og lýsandi dæmi um hvað "frægðin" getur gert fólki sem er ekki sterkt á svellinu. 'Astæðan fyrir mínum "áhuga" á þessu öllu er að dóttir mín hefur verið aðdáandi frá upphafinu, og margar umræðurnar verið við eldhúsborðið um vandamál stúlkunnar....alvöru og tilbúin. Nú er stúlkan gersamlega búin að missa fótfestuna, og sorglegt á að horfa hversu margir eru um að notfæra sér ástand hennar sjálfum sér til framdráttar.Það er lærdómur í þessu öllu saman, og við lærum svo lengi sem við lifum.
Rannsakað hvort Britney hafi verið byrluð lyf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 13:35
'Afallahjálp
Já, ég er ekki viss um að þetta myndi gagnast okkar löggæslu, nema þá helst til að hreinlega sjokkera skemmtana lífið í miðbænum um helgar. Sé fyrir mér 3-4 saman einkennisklædda, með hendur yfir höfuð á tánum í þreföldum snúningi
Fólkið myndi sennilega hlaupa í skelfingu heim til sín, og mynnast með hryllingi....helgarinnar sem það fékk tremmann
Lögreglumenn læra ballett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2008 | 12:15
Helgin
Jæja þá er enn einni vinnuhelginni lokið, ljúft til þess að hugsa um fríið næstu helgi
Við stelpurnar erum búnar að vera frekar spakar, fórum á flakk á laugardaginn, skoða litlar kisur sem Lára "hunda" frænka ætlar að ættleiða....svaka sætar
Þá fórum við á Geirsnefið að skrölta. Lilo er nú öll að koma til, gegnir svona sæmilega kalli og skokkar ekki undan þegar á að festa tauminn. Hún fékk nú smérþefinn af því að vera "lítill" hundur, því þarna kom svakalega fallegur strákur "stóri dan" Golíat, og var hann alveg til í að leika
Tröllabarnið mitt var nú ansi smátt þarna á hlaupunum, og fékk hún sinn skerf af traðki þarna....allt í góðu.... og mjög gaman hjá þeim. Litla dívan hékk bara að mestu í fótunum á frænkunni....viss um að hún yrði tekin upp
'A sunnudaginn vorum við bara í rólegheitum, fengum okkur bara gott í gogginn og höfðum það næs í stofunni með kaffi og bein
Við erum að kanna hundanámskeið núna, verður spennandi að prófa eitthvað slíkt, því Lilo er mjög námfús og virðist hafa áhrif á Ronju líka, því allt í einu er hún farin að heilsa og gera hluti sem hún hefur ekki verið viljug að gera hingað til.....hef hana nú að vísu grunaða um að hafa bara farið á bakvið sófann eftir margar tilraunir til kennslu..... heilsað lagst og rúllað sér og ullað svo í áttina til okka þegar einginn sá
Þetta er hunda líf, og við skemmtum okkur konunglega
Hafið það gott, og munið að hláturinn lengir lífið....og gerir það skemmtilegra!
21.2.2008 | 11:57
Toadally spoiled
Mikið er ég orðin þreytt á þessu blauta þarna úti
maður er upp fyrir ökkla í drullusvaði á röltinu... sífellt að skola hunda og skó. Frostið núna
Þarf að fynna mér einhverja skemmtilega gönguleið með skotturnar, tröllabarnið (Lilo) er alltaf í taumi enn sem komið er, en skottið hún Ronja elskar að fá að skottast laus (enda bara stutt síðan við leifðum það) Við erum alsæl með tröllabarnið Lilo, hún var hjá dýra í vikunni að fá bólusettningarnar sínar og var viktuð.... tæp 25 kíló og er bara í fínu formi. 'Eg hafði áhyggjur því hún virtist vera að horast hjá mér, en kom í ljós að hún var bara að byggja upp vöðva og breytast í vekstinum ( þurfti að búa til auka gat á hálsólina til að þrengja) Enn erum við að þjáfa hana á göngu..... hún er alveg rosalega kröftug.. og nánast kippir manni úr lið þegar hún tekur á rás. Við erum með hana á stuttri keðju til að æfa að ganga við hæl, hummm gengur ná svona frekar hægt, "mín aðferð" er með eitthvað gott í hægri hendi, held um taum í vinstri fyrir framan, og fær hún annarslagið smá nart ef hún er dugleg að toga ekki. Ef einhver þarna með góð ráð....vel þegin
líka góðar gönguleiðir fyrir hundafólk.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.2.2008 | 11:49
Kaninn að koma út úr skápnum?
Já það verður gaman að fylgjast með frammhaldinu af þessari frétt. Kanin er nefninlega mjög (falsklega) íhaldssamur þegar kemur að nekt, jafnvel af sklausum toga eins og brjóstagjöf á opinberum vettvangi. Ekki máttu heldur vera berbrjósta innan eigin lóðamarka... granninn gæti verið með kíkir og misboðið
Áfram nekt á sunnudögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2008 | 21:38
Tiltektin mikla !!
Tenglar
Veðurspá
Dýralíf
Margt fróðlegt
- Cesar Millan Hunda hvíslarinn
- Dýralækningar
- Dýralíf
- Hundaspjallið
- Hundarfí
- Hundar.is
- Hundaheimur netverslun
- Hundahótelið Leirum
- Hundaskóli
- Hvuttar
Bara fyndið
- Bara satt Góð byrjun á deginum
- Eftir einn..... þá aki ekki neinn
- Hellisbúinn Veiðieðlið
- Berirass
- Netsaga
- Stress próf
- Þegar þú sérð ekki til Þá tala dýrin
Sweet
- Diagnose that dog
- Einmitt það sem ég var að gera áðan Hummm ja ok um helgina þá ;-)
- Hvað á mar að gera"einn heima" SKEMMTA sér
- I love u I love u
- Láttu vera!!
- Líkamsræktin heim!! Þetta er nú upplagt á rigningardögum
- Notalegt að hafa svona í bakgarðinum
- Smart
- Svangur köttur
- Vel syndur og gáfaður líka he he
Orlando Florida
- Orlando veðurspá
- Heimasíða Önnu og Kalla Hjá foreldrunum
- Busch Gardens Tampa Fjölbr skemmtig og dýragarður
- Disney World Bara sweet
- Florida Mall
- Mall at Millenia
- Seaword Mitt persónulega uppáhald
- Universal Studios A must see
'Ymislegt
- Höndin Virðing-Mannúð-Sjálfshjálp
- Women in art
- Mótmælum háu vöruverði Samtaka nú
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
Bloggvinir
Nautasteikin.
Nautasteikin
Nýjustu færslur
- 30.5.2008 Ja hver hefur ekki lent í þessu !!! Steven Tyler
- 29.5.2008 Boggedí blogg
- 26.4.2008 Gleðilegt sumar!!
- 25.4.2008 Hæfileikakeppni Bretland.
- 23.4.2008 Aumingja sparibaukurinn minn!!!
- 23.4.2008 Fiskinn minn....
- 22.4.2008 'Abyrgt fólk
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Samkeppni við Kína skapar vanda fyrir fatageirann í Bangladess
- Pæling I
- Þóra þegir, Þórður Snær kvartar undan skipstjóranum
- Kínverska leyndin er ekki gagnleg
- Trump sjálfum sér líkur
- Eyjólfur fékk ráðherrastól
- Bæn dagsins...
- Hvernig ætti að vera hægt að bjarga bandarísku þjóðinni undan gamalli helstefnumenningu? Þetta er tízkubóla og annað ekki
- Var Íslandi hótað?
- Sjálfstraust Pæling III-IV
- Þegar Elítujón veit að Almúgajón er "hugur slökkt"
- Endurreisn ómennskunnar !