Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Boggedí blogg

Þvílík bloggleti, eiginlega skammast mín smá Blush En svona er þetta bara, með hækkandi sól þá er maður kannski bara eins og beljurnar, skoppandi út um allar trissur að njóta birtunnar. Annars er allt gott af mér og mínum að segja, Ronja litla tjúa skvísa er nú búin að vera á lyfjum í 4 vikur og gengur vel. Hún hefur að vísu bústnað aðeins, en það er nú algeing hliðarverkun með þessum lyfjum, sem meðal annars auka matarlystina. Litla tröllabarnið er nú bara orðin eins og hugur manns, soldið óþekk á stundum, en það fylgir nú aldrinum, hún er rétt að verða 10 mán. Fólk sem hefur ekki séð hana lengi, varla þekkir hana sem sama hundinn, hún forðaðist alla snertingu, og var svakalega óhlýðin,leit stundum út fyrir að hún þekkti ekki einusinni nafnið sitt, svo úr tengslum var hún. Núna keppist hún um athyglina jafnt og litla skottið, og er kelin og kissuleg....slurp Tounge Við erum mikið með hana á lausagöngu, og fylgir hún okkur hvert fótmál, og hefur hún unnið hug og hjörtu allra sem meða henni hafa fylgst. Margir sem áttu ekki von á að hún myndi nokkurntíma treysta aftur, en hún er alveg einstök af gæðum þessi engill. InLove

Höfundur

Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador
Fjölskylda  farin í hundana Dog 5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband